|
|


 |
Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:30-16:00.
Ráðstefnan fjallar um stöðu þeirra barna gagnvart skóla og menntun sem jafnframt fá þjónustu í barnaverndakerfinu, ekki síst fósturbarna og barna á meðferðarheimilum, og mikilvægi samvinnu þessara kerfa. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru Bo Vinnerljung frá Svíðþjóð og Tore Andreassen frá Noregi. Nokkur styttri íslensk innlegg fjalla um tækifæri og áskoranir í samstarfi barnaverndar og skóla hér á landi.
Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu en hádegisverðarhlaðborð kostar ...
meira ...
|
 |
Rannsóknir hafa leitt í ljós að aðferð sem kallast Áhugahvetjandi samtal (Motivational Interviewing) ber árangur í ráðgjöf, bráðaþjónustu og meðferðarvinnu með unglingum sem glíma við hegðunar- og vímuefnavanda. Aðferðin hefur haft mikil áhrif á skilning og aðferðir fagfólks í meðferðarvinnu með fullorðnum og unglingum sem eru í þörf fyrir breytingar ...
meira ...
|
 |
Meðferðardeild Stuðla verður lokuð frá 1.-31. júlí vegna sumarleyfa starfsfólks. Með lokun í júlí er talið að best fari saman hagræðingarsjónarmið og gæði í meðferð. Undanfarin ár hefur sú leið verið farin að fækka börnum yfir sumarmánuðina og mæta sumarleyfum með afleysingum. Þannig hefur hlutfall afleysingastarfsfólks orðið hátt yfir hásumarið ...
meira ...
|
 |
Námstefna verður haldin dagana 2. og 3. maí n.k. klukkan 9-16 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins undir yfirskriftinni "Foreldrar í vanda – börn í vanda. Heilbrigð frumtengsl – forsenda lífshæfni." Að henni standa Þerapeia, Miðstöð foreldra og barna og Barnaverndarstofa. Til námstefnunnar hafa verið fengnar þær Kari Killén frá Noregi og May ...
meira ...
|
|


















|
 |